Er það bara ég eða eru þessir þræðir sme hafa verið að koma undanfarið bara alveg hreint ömurlegir?

Hef ekki lesið almennilegan þráð í fleiri daga, og það líkar mér ekki, ekki það að ég hafi svosem verið að gera eithvað í því þannig að ég býst við því að ég sé ekkert skárri.

Ég er sammt ekkert persónulega að setja útá þá sem hafa verið að senda þræði undanfarið, bara mín skoðun á málinu og var að velta því fyrir mér hvort að það væru einhverjir fleiri á sömu skoðun.

En bara svona þannig að þessi korkur sé ekki bara leiðindar væl og aumingjaskapur þá langar mér alveg ofboðslega að spurja ykkur hvort að þið séuð draug-hrædd, eða hrædd við eithvað annað álíka?

Ekki meira í bili.

Bætt við 26. ágúst 2006 - 00:04
Ps. Þessi þráður er svosem ekkert skárri en aðrir, þannig að það er hægt að sleppa skítköstum um það :)
Með von um þroskað svar, kv. Fontes