Ég var bara að spá hversu margir sorparar hefðu farið í gönguna og á ballið í gærkveldi.

Ég fór á á bæði og var bara að koma heim, get ekkert annað en hvíslað út af hæsi (s.s. hás) og er að DREPAST í fótunum, það var samt alveg þess virði fannst mér, ég skemmti mér aldrei betur en á gay-pride. Ég veit ekki alveg út af hverju, ég er ekkert fyrir konur þannig séð nema full á djamminu (held ég) en mér finnst þetta kvöld alltaf skemmtilegasta kvöld ársins.