Klukkan er níu og ég hef þegar eytt tvem tímum af þessum degi vakandi að raða bakkelsi, brauðum, rúnstykkjum og sallötum. Joy?

Dagurinn lagast þegar ég fer í fartölvuleit. Ekki það að hann hafi byrjað illa, um miðnætti það er að segja. Uss. Ég ætlaði að vera svo dugleg. Fara að sofa klukkan eitt! Sendi eitt sms fyrir svefninn og fékk svar… og áður en ég vissi var klukkan orðin hálfþrjú! Svona er að hafa einhvern skemmtilegan til að smsast við!

Og á morgun er Gay Pride! YAY!

Og svo helgina eftir það er menningarnótt. Það verður SKEMMTILEG menningarnótt *hlakkar til*

Dúddúrú. Hæ.
-Tinna