Ég er mikill aðdáandi fóstbræðra og tvíhöfða og á allt efni sem þeir hafa gefið út en var að velta því fyrir mér hvort einhverjir hér ættu eitthvað efni með þeim sem ekki hefur verið gefið út. T.d. upptökur af fóstbræðraþáttum sem ekki var selt á videospólum.
Upptökur af atriðum frá tvíhöfða eða jafnvel heila þætti.

Svo vantar mig líka alltaf spliff, donk og gengju sem var selt í kringum fóstbræðraþættina á sínum tíma.

Einnig getur verið að mig vanti gulu fóstbræðra spóluna en það kemur í ljós eftir nokkra daga. Ef þið eigið hana megið þið endilega senda inn svar.

Sem sagt. Ef þú átt eitthvað með tvíhöfða eða fóstbræðrum máttu senda inn svar. Hver á ekki gamla spólu niðri kjallara með upptökum af þáttunum sem sá hinn sami gæti þá annað hvort fjölfaldað eða selt mér beint.

kveðja, Kolbeinn