Ég var að tala við litlu systur mína áðan. Svona upp á funnið:'D

Og ég var að tala við hana um langlanglangafa okkar sem var þýskur. Sem þýðir það að við erum 1/32 Þjóðverjar! Whoohoo!

En allavega þá sagði hún:
“En af hverju kunnum við þá ekkert í þýsku nema asnalegar setingar”

Svo útskýrði ég fyrir henni hversu fjarskylt þetta væri og að langlanglangafi okkar hefði haldið framhjá þýsku konunni sinni með íslenskri og þessvegna værum við til.

Ég:
“Annars skiptir þetta engu máli. Við erum íslenskar. Langlanglanglanglanglanglanglanglangalanglang-og-svo-framvegis-afi okkar var sennilega norskur.”

Hún:
“Jááá.. Og ennþá meira langafi okkar var api.”

:'D

Vá, þetta var fyndið. Ég var að drepast úr hlátri:')