Ég var bara eitthvað að slaka á inná huga.is og fann þá eitthvað sem er getur ekki endilega talist villa en er stórfurðulegt…

ég bææti félaga á vinalistann og skráði mig út.
þegar maður bætir einhverjum á vinalistann fer maður beint í skilaboðamöppuna. og svo þegar maður maður skráir sig út strax eftir að vera komin/n inn í möppuna (það þarf að bæta einhverjum á vinalistan til að þetta virki…) þá er maður kominn í skilaboða möppu sem maður kannast ekkert við og ef maður ítir á eitt af bréfunum kemur upp texti um það að maður eigi ekki að skoða bréf annarra…