Ok, þetta er í lagi hjá Vansa og Mizzeh og öðrum selebretís en ok, þetta er alveg gjörsamlega út í hött að í hvert sinn sem fólk loggar sig inn og út í viku þurfi það að kveðja og heilsa með táknrænum hætti.

“Nú er ég að fara upp í bústað og verð þar yfir helgina, sé ykkur seinna :'(”

“Hæ, sorparar, ég er kominn frá bústaðnum, langar að segja hæ við ykkur öll sem söknuðuð mín, ég elska ykkur öll”

En þetta pirrar mig bara og ég er bara svona að láta ykkur vita.

“Ég veit að ég kom fyrst inn á /sorp fyrir tveimur dögum en ég mun sakna ykkar sárt, ég er nefnilega að fara í sumarfrí”

vona að fólk sem er ekki sammála svari þessu ekki.