Ég hef verið að hugsa málið og í gær tók ég þá skyndiákvörðun að breyta nafninu mínu aftur í Tinna. Bob býr ennþá innra með mér en Tinnan í mér braust út á yfirborðið. Engin skýring hefur fengist á málinu en það í rannsókn. Allir þeir sem geta hjálpað, hafa vitni eða vísbendingar eru vinsamlegast beðnir um að láta vita.

Annars fékk ég einnig þær gleðifréttir að ég þarf ekki að vinna um helgina eins og ég hélt og ætla þess vegna að klappa aðeins *klappar aðeins*
En á móti kemur að ég þarf að vinna með miður skemmtilegum starfskrafti hinar helgarnar [sem sagt aðra hvora helgi] en það eru launin sem gilda.

Nú hef ég aftur á móti nokkrar spurningar;

1. Hvort fer mér betur, Tinna eða Bob?2
2. Eru þið í vinnu og þá hvar?
3. Hvenær áttu afmæli?
-Tinna