Héllóww.. Mér leiðist, það er ekki manneskja í um 5 km radíus í kringum mig, ótrúlegt en satt, ég er ein heima í sveitinni og ekkert að gera! Hafiði ekkert skemmtilegt að segja?

Ætla ekki allir á samkundu á morgun? Ég ætlaði en kemst ekki.. svo var mér lofað nægri vinnu í staðinn, en nei.. það er bara ekkert að gera hérna ;(

En svo verður tekin um 16 tíma vinnutörn á morgun, eins og er þá hlakkar mig til ;Þ Þá verður allavega eitthvað að gera..

Mig langaði til að gelta á kindurnar áðan.. Var að reka út af túninu.. voða “gaman” en svo er ég bara orðin það hás að geltið mitt var falst.. Ekkert gaman.. ;( Úff.. núna eru ekki einusinni kindur á túninu sem hægt er að reka út.. Á maður kannski að sækja þann þann gamla og ríða smá út.. Nei helvískur klárinn var svo tensaður í gær að ég nenni ekki að eiga við hann núna.. Einhverjar hugmyndir af skemmtilegum hlutum að gera í sveitinni?

Á maður kanski að taka upp gítarinn og vita hvort maður kann eitthvað enþá? *geisp*

Hvað er verið að gera annars?
-