Sinadráttur… er vondur ><
var klukkutíma lengur í skólanum til að skrifa ritgerð um Jón Sig sem á svo að skila í fyrsta tíma á morgun, við kláruðum ekki, helvítis bókasafn sem þarf að loka snemma :/

Aaaallavega, þá er allt í lagi með mig þegar ég er að skrifa þessa blessuðu ritgerð, svo fer ég út og byrja að ganga smá, þá fæ ég þvílíkann verk í annan sköfluninn sem gerir það að verkum að það er þvílíkt vont að labba. Svo er eins og vöðvinn sé að herpast um beinið og ég finn alltaf meira og meira til! ><
svo þegar ég er hálfnuð á leið heim [er í skóla í kóp en þurfti að labba til rvk] þá fæ ég alveg eins verk í hinn fótinn!
Sem verður þess valdandi að ég þarf að labba eins og spýtukall :{
það var, frekar mikið vont.
Annað skiptið í röð sem ég fæ mikla athygli á þessari leið minni, í fyrra skiptið þá var ég á leið heim af þemadögum og labbaði yfir skólalóð Fossvogsskóla með Taílenska fánann í andlitinu mínu í fríminútunum.. yndislegt :/

hmm.. svo reyndar.. þá veit ég ekki hvort ég hafi fengið sinadrátt áður eða hvort að þetta hafi verið sinadráttur! :o
hef allavega fengið svona verk áður :/
þaaannig að, veit einhver hvað þetta er? ^^

hmm.. eitthvað sniðug saga sem þið viljið deila með mér? ^^
Deyr fé, deyja frændur,