*Ræsk*
(partur úr blogginu mínu)

Eins og allir Evrópubúar sem eiga sjónvarp vita var Eurovision í gangi. Ég horfði eitthvað smá á forkeppnina í fyrradag, smá því ég var að læra. Dugleg?
En allavega, mér fannst Silvía Nótt vera hrikaleg þarna á sviðinu >.< Hún söng ekki vel því hún var svo andstutt, gelgjustælarnir og bara, ew. Svo sjá útlendingar ekki grínið í þessu eins og við Íslendingar. Mistök að hafa sent hana þarna út, gelgjurnar náttúrulega á fullu með símana sína þegar undanundankeppnin var svo.. =/ En mér er svosem sama Ég hélt með Finnum og þeir ownuðu þetta =D

www.blog.central.is/muskeete