þetta er fyrsta greinin mín og þetta er 1 hluti af 2

Einu sinn var lítill Trúður, Lalli hét hann og hann bjó í litlum sirkus við risastórt fjall. Hann var sköllóttur og með rautt skegg. Eitt skiptið eftir langa og leðinlega sýningu var hann að labba heim til sín þegar hann sá risastór fótspor *GASP* og það var stærra en….en….en rúmið hans Lalla!!(sem var 15 cm á breidd og 90 cm á lengd).
Hann varð mjög forvitinn þannig að hann þreif B.O.B (Besta-ofur-baunabyssan) og elti sporin sem leiddu hann upp fjallið stóra.
Eftir sjö vikna fjallgöngu þá steig hann allt í einu á skeggið sitt *ÁÁÁÁI!* og datt niður á svell og rann niður fjallið!!!! NEIJJJHHH! en hann gafst ekki upp nei hann VARÐ að finna út hver sem gerði þessi spor. Eftir um það bil 10 vikur eftir hann datt var hann kominn að stórum og drungalegum helli!*du-du-du-dumnm*.
Nú var Lalli svakalega forvitinn og þegar hann var kominn nokkið inn í hellinn heyrði hann miklar drunur og upp gaus ægilegur fnykur sem mynnti á fúlt poppkorn og gamla vaxliti *OJJ* og rétt á eftir kom mikil vindhviða sem var verri en fellibylurinn Katrín sem feykti honum út úr hellinum. Þá vissi Lalli að hann þurfti að fara inn annarstaðar svo að hann fór bakdyra megin.
Inni í hellinum sá Lalli risastórt ljótt Snjóskrímsli sem var steinsofandi í stórum hægindastól og nagaði vaxliti í svefni.
Lalli sá að hann hét Rúfus því hann sá að skrímslið hafði svona Mcdonalds merkli með nafni sína á en nóg af því, þegar Lalli var að læðast um hellinn þá datt hann óvart á sjónvarps fjarstýringuna og skipti óvart á 500unda þátt leiðarljóss þá vaknaði Rúfus.
Lalli hljóp þá út af hræðslu með Rúfus á eftir sér *BAMM BAMM BAMM* *URRGGHH RARRRGHH!*, Lalli var rétt kominn út úr hellinum en steig á skeggið sitt og datt ÓNEIII! en bíddu Lalli tók upp B.O.B og skaut beint í nasirnar á Rúfus og þar með keypti sér tíma til að standa upp og renna sér á svellinu sem hann datt áður fyrr en sem betur fer Rúfus fékk snjónasir og gat ekki elt Lalla. Lalli fór heim í vagninn sinn og skráði allt sem gerðist í dagbókina sína. TO BE Continued……..!

hluti 2 verður vonandi með meiri hasar og húmor en sjáum nú til því ég á eftir að skrifa hluta 2. Mun Rúfus horfa á síðasta leiðarljós þáttinn?? mun hveiti vaxa á höfði Lalla?? hvar er kalli trúður? þið munið finna út seinna :).
I can't help it!…I'm Metally Insane!