Jæja.. þá er skólinn þúinn og ég að fara í tölvulausa sveit bráðum og þá verð ég að yfirgefa ykkur fram á næsta haust!! En svona áður en ég hveð alveg þá ætla ég að bulla eitthvað meira inná þennan kork, held ég komist aðeins inná framm á næstu helgi!

Reyndar þá hef ég lítið sem ekkert komist inná á síðustu dögum.. var í prófum og svo er fyrsta tamningar tryppið mitt orðið reiðfært! Fór í reiðtúr á honum um daginn, og ég er ekki frá því að hann sé besta hross sem ég hef komið á bak á!

Til gamans má minnast á það að hann heitir strákur og því var ég að ríða Strák frá Miklabæ í Skagafirði… Þvílíkur foli.. Full ungur en.. Hvaða, hvaða.. ;Þ

Úff.. Svo eru allir að flytja! Sonjal og B2uf eru að flytja í bæinn næstu helgi.. Ég veit ekki hvort ég nenni þessum skóla án þeirra.. En annars er ég komin í sumarfrí!! Gaman, gaman.. ;Þ Nema það hvað ég á eftir að komast takmarkað á netið..

Svo er ég að fara að keppa næstu helgi ef allt gengur upp..

En já.. sorry að þessi korkur er hálfgert blogg, ég er bara í einhverju flipp stuði og varð að koma og kveðja ef ske kinni að ég kæmist ekki í það áður en ég fer í sveitina.. En ég á eftir að sakna ykkar, allra endalausu umræðanna um allt og ekkert.. Ykkur allra sem ég hef kynnst í vetur, en vonandi verða ekki allir hættir þegar ég kem aftur í haust.. Nei það gerist ekkert, er það nokkuð? ;Þ

En endilega segið eitthvað skemmtilegt, komið með einhverjar skemmtilegar umræður.. Ég er ekki alveg farin.. Kem inná þegar ég kemmst í netið.. En líklega fer ég um helgina, ég vildi bara kveðja (hversu oft er ég búin að segja það?)..
-