Vá í morgun vaknaði ég tattúveruð! Það var um allan líkaman þessar “rúm-línur-strik-thingy” (þið vitið hvað ég er að tala um right?) Afhverju fær maður svona? Bráðnar líkaminn saman við rúmið? :Þ

Og í dag þegar ég var að labba í skólann og úr honum þá sá ég örugglega 5 milljón orma á leiðinni! Langt síðan að ég hef séð svona… rifjar upp þegar ég var 5 ára, var í svona ormaspítalaleik, þeir sem voru dauðvona setti ég í ræsið og slösuðu í hrúgu á laufblað hehe, góðir tímar.

Og núna er ég með eitt skilaboð frá zófabíbí eða e-ð og ég þori ekki að kíkja á það vegna þess að ég sé eftir svarinu mínu á nöldurkorki um hann, hann er örugglega að svara því… dæs…