Var ég að tala við tvö frændsystkini mín og tvær konur og þau væru að tala um einhvern hest sem hafði særst og gat ekki hreyft sig neitt, hann var lamaður frá nefi og niður. Svo voru þau eitthvað að segja að sumt fólk héldi að hann gæti kinkað kolli og hrist hausinn (það var samt ekki satt) og þau voru líka að hneykslast á þessum orðrómum.
- En geta venjulegir hestar eitthvað kinkað kolli eða hrist hausinn? Spurði ég.
Þá fóru þau öll í kast, frænka mín veltist um á gólfinu af hlátri og frændi minn stökk í sófann hlæjandi (don't ask…) og konurnar tvær hristust af hlátri. Ég skildi hinsvegar ekki neitt í því hvað var svona fyndið og hló bara með…
Svo eftir smá tíma þegar allir voru búnir að jafna sig.
- Hvað var svona fyndið? Spurði ég.
Þá fóru þau aftur í hláturskast og ein konan útskýrði fyrir mér að…
ÞAU VORU EKKI AÐ TALA UM HEST HELDUR MANN!!

Wow hvað þetta var neyðarlegt =$
Ég meina ég skil ekki afhverju ég fattaði þetta ekki þegar þau sögðu að hann væri lamaður frá nefi og niður…ég meina hvernig gæti það meikað sense ef þau væru að tala um hest? XD

Kv, Desmondia