já í eina bóklega tímanum mínum í dag sem ég gerði ekkert í var frekar gaman :P var að fara að vinna og þá hellir vinur minn yfir mig vatni og ég klikkast en hann nær að setja flöskuna í töskuna og biður svo um að fá að fara á klóstið og hleypur út með flöskuna og ég fæ líka að fara á klóstið og hleyp á eftir honum, og hann var nógu vitlaus til að fela sig í horni og ég náði honum náttúrulega og tek flöskuna og hann reynir að stoppa mig og svo kemur annar vinur okkar og hann öskrar: JÓI HJÁLPAÐU MÉR! og þá segir Jói: mér er alveg sama ég er í tíma! og ég helli helling yfir hann og drulla mér aftur inn í stofu og svo kemur hann eftir sona 8 mín og ég bjóst við að hann myndi hlaupa að mér með flöskuna en þá var hann búinn að losa sig við hana :P og það leit út eins og hann hafi svitnað helling xD