Já, ég kem að fjöllum (ekki jóli though..bad joke).Ég hef ekki komist hjá því að sjá einhverjar systur mínar kaupa rakvélar…já rakvélar, margar saman í pakka. Ég komst að því seinna þegar ég var kominn með smá vit í kollinn að auðvitað voru þær margar af því þær eru einnota!:O og spurning mín er komin af því að af hverju eru þær einnota? Eru þær svona eins og nýju 48 klst dvd diskarnir? eða límband sem verður bara búið? Og er þetta bara fyrir ykkur kvennfólkið? Ég á rakvél eins og flestir strákar á mínum aldri, svona rafmagns og allt,fékk hana frá afa mínum langt áður en ég þurfti á að halda svo að ég hef aldrei þurft að hafa það á herðum mér hugsunina hvernig rakvél ég ætti að kaupa mér. Svo að ég kem alveg af fjöllum.