Sættu þig við þetta, við eigum heima á klaka á mörkum hins byggilega heims, það er aldrei gott veður hérna, nema 2 daga í júlí. Ég hata þetta land, það ætti að koma aftur svona Íslendingafækkunarátak eins og var þegar Vestur-Íslendingarnir fluttu til Ameríku, ég myndi taka þátt.
Mér var samt ekkert svaka kalt í dag, nema inni í skólanum, helvítis loftrifur sem einhver þarf alltaf að opna, og ég nenni ekki að loka -.-
Fyrsta hugsun mín í morgun var samt: Ái, mér er illt í maganum, og svo fór ég að sofa. Þegar ég vaknaði næst hugsaði ég fyrst: Ó fokk, asna vekjaraklukka, hún hringdi ekki! ég fann ástæðuna fyrir því strax á eftir, ég stillti hana vitlaust. Sem minnir mig á það, fimmtdagur á morgun, sem þýðir lengisof =} Me loves thursday…
Talandi um iPod heyrnatól, ég var að dekra Lucifer minn í dag, eyddi 8.000 krónum í hann í apple búðinni, keypti útvarpsmóttakara og iPoda sokka, þvílíkt flott! Svo endurinnréttaði ég húsið hans, það lítur miklubetur út núna, Hades er fluttur út frá honum, og hann er með sér rými fyrir heyrnatól og alles! Heppni heppni Lucifer…
Ísland er kalt.