Þar sem að ég er að fara að fermast á sunnudaginn vantar mig 10 stimpla..
tja.. í byrjun vikunar var ég með 7 stimpla :)
en núna í gær hringdi presturinn minn í gemsann minn (hvernig sem hún fékk númerið) og neyddi mig á æskulýðsfund!
ég neyðist víst til að mæta..
og já.. hræðilegt ><
samt frekar skondið að sjá prestinn í þythokký :Þ

En núna í dag.. eða í kvöld.. gerði ég mig að fífli :/
ég mætti í svona bænastund með bróður mínum og við vorum bara tvö og einn annar súpertrúaður gaur..
Fyrstu fimm mínúturnar er allt í lagi.. og svo er farið með trúarjátninguna!
og þá þarf auðvitað að standa upp!
Bróðir minn stendur upp.. og missir símann sinn! í miðri trúarjátningunni! :')
og ég dey úr hlátri!
og presturinn og gaurinn stoppa í miðri trúarjátnignu og byrja svo að leiða okkur frá sér.
Bróðir minn var rólegur en ég hló alla bænastundina! :')
var í kasti :/
svo þegar þetta kláraðist bjóst ég við skammarræðu en hún var of móðguð til að tala við mig og gaf mér bara stimpil!
og ég labba bara út eftir það og hlæ úr mér sálina! :'D

æjji.. þetta er ekkert fyndið að lesa þetta.. en vá! ég hló :')
og eitt en.. leiðist einhverjum á morgun?
passa tíu til tólf aára krakka með mér? (A) :D
Deyr fé, deyja frændur,