Jæja, ég var með frían ís til sölu í dag hérna heima hjá mér, auglýsti það ghrimmt, og ENGINN, enginn mætti! Er öllum svona illa við ís eða? Ég auglýsti þetta grimmt á msn, og enginn mætti, ég er móðgaður! Ég ætla aldrei að vera svona rausnarlegur aftur, ALDREI! There you have it…

En ástæðan fyrir því að ég ákvað að skrifa þráð er sú að ein ákveðin Írena gerði svolítið ljótt á msn rétt í þessu…
Ég var að snæða ís, afgangana sem ég ætlaði að gefa, og fór að tala um það. Ég fór að tala um það hvað ís væri æðislegur, og hún var sammála. Eða, það hélt ég í fyrstu….
Msn samtal:
Freude am Fahren ||| Viðskiptavinir athugið: Tækifæri ykkar til að fá frían ís er búið, ég er að borða leifarnar, poor you. says:
ég fékk miiiiikinn ís þarna    
Írena   says:
ég líka..enda þurfti eg að endurgjalda þaaðð síðustu vikuna á spáni 2003  
  Freude am Fahren ||| Viðskiptavinir athugið: Tækifæri ykkar til að fá frían ís er búið, ég er að borða leifarnar, poor you. says:
hvernig þá?
Írena   says:
ég fékk gubbupest :')
Það að fá gubbupest af ísneyslu er guðlast, eða það finnst mér, ég trúi því að ísinn sé máttugt afl sem mun á endanum taka fir heiminn og breyta rigningu í frostpinna, snjókomu í rjómaís og sjó í ískrap. En, að fá gubbupest af þessum dýrlega ís, hvernig er það hægt?

Ég legg til að ein ákveðin Írena verði látin gjalda fyrir þetta, hendum henni á bál, og hún mun aldrei fá að smakka ís framar, ALDREI! Einnig mun allri fjölskyldu hennar og vinum verða neitað um ís næstu 3 árin, til að refsa þeim fyrir að þekkja svona manneskju!

Hver er með mér?

Kveðja, Vansi, stoltur Ísingur!