Í dag var ég eitthvað að leika mér í manager þegar eitthverjir 3 leikskólakrakkar banka á hurðina og ég hugsaði “ohh geta þessir krakkar ekki hætt að betla eitthvað fyrir tombólur?”
En síðan þegar ég opnaði hurðina spurði einn krakkinn “Nenniru út í fótbolta?” og ég bara “HA?” hugsaði það ég sagði það ekki við krakkann.
Og síðan þegar ég fór að hugsa hvað krakkarnir voru mikið minni en ég þá sagði “Nei, veistu ég nenni því bara ekki núna” samt nennti ég alveg í bolta bara þessir krakkar voru svona 3x minni en ég.
Ef þeim væri staflað ofan á hvorn annan þá væru krakkarnir kannski 1,70.

Held að krakkarnir hafi samt dinglað á allar bjöllur því ég heyrði þegar bjallan hjá nágrannanum fór í gang.

Hafiði lent í eitthverju svona furðulegu?

Notabene ég þekki þessa krakka ekkert og veit ekkert um þá nema mig grunar sterklega að þeir eigi heima á Bifröst