Whaa!
Tinna pirruð núna!

Ég fattaði áðan að það eru bara 17 kennsludagar eftir í samræmduprófin og ég er ekki byrjuð að læra og ég er STRESSUÐ. Ég var að gera planið mitt áðan og þarf að læra læra læra því að ég býst ekki við miklum lærdómi um páskana [special guest *fliss*]

Svo var ég að fatta að á morgun er ég að fara í próf úr Englum Alheimsins sem er bara alveg nákvæmlega þannig að ég á að skrifa 1-2 bls um einhverja persónu [fengum nokkrar að velja úr]. Jæja, málið er að ég er ekki byrjuð að æfa mig og veit ekkert hvað ég á að gera eða skrifa og þetta er fjandskotans erfitt!

Tinnu langar að sofa í 13 daga *snökt*
-Tinna