Getið hver á hálfsárs afmæli í dag.

Nei, ekki ég, ég er aðeins eldri en hálfsárs…..





Rétta svarið er….


Sir Lucifer iPod!



Fyrir akkúrat hálfu ári síðan var ég í London, og þar keypti ég Lucifer minn iPod, eða reyndar er aðeins meira en akkúrat hálft ár, því að ég keypti hann um morguninn þann 19. september síðastliðinn.

Ég er stoltur, búinn að eiga þennan iPod í hálft ár, 6 mánuði, margar vikur, án bilana eða annars! Ég er náttúrulega alltaf svo góður við hann og svona, er ekkert að henda honum neitt í þvottavélar eða jörðina. “Missti” hann samt einu sinni í gólfið á samkundu *flaut*

Lucifer er yndi, fallegur, svartur iPod nano 2gb, sem virkar alltaf sama hvað á gengur. Ég er stoltur af honum.

Til hamingju Sir Lucifer iPod!



(afsakið mögulegar innsláttarvillur, var að fá nýtt lyklaborð, sem er smá viðbrigði, auk þess sem það er ekki með neinum svona íslenskustafalímmiðum, og fingrasetningin ekki alveg fullkomin hjá mér…)