Svo er með máli vexti að ég fór í Smáralindina í dag og tók eftir manni einum sem var svoldið aldraður. Allavega, hann settist í sófann rétt hjá Skífunni. Ég fór í Tiger og keypti mér trommukjuða. Svo fór ég í sjónmælingu og (viti menn) gaurinn var ennþá þarna… sofandi? Svo fer ég í landsbankann. Hann situr enn á sínum stað. Svo fór ég aftur í Tiger að kaupa mér spilapeninga. Þegar ég kem aftur er gaurinn ennþá þar. Að lokum fór ég í Skífuna og var eitthvað að skoða. Aftur, þegar ég gekk út var kallinn ennþá í sófanum með geyspagolu svið á sér. Ég var þarna í 2 tíma og hann var alltaf í sófanum. Ég er hræddur um að hann gæti… verið dáinn. En kanski ekki. En samt.

P.s Gleðilegan ST. Patreksdag :D:D:D:D:D
Let me in, I’ll bury the pain