Það var nú vitað að Íslendingar voru vitlausari en villirolla en það var að koma í ljós í dag að þeir eru nú flestir ekkert vitlausir. Þeir eru bara blindir. Eða blindir er vægt til orða tekið. Þeir eru blindari en blindur banani.

Fyrir þá sem hafa ekki hugmynd um hvað ég er að tala þá er ég auðvitað að tala um fyrirhugað álver á Húsavík. Vita menn ekki að Á.L.V.E.R. stendur fyrir Áskrift af Lifandi Vessum Erlendra Ráðsmanna.

Íslendingar hafa þar til nýlega sloppið við að veikjast af þessum vessum. En nú er öldin önnur. Nú eru Íslendingar óðir í að gleypa þessa vessa og nudda honum framan í sig. Og hver veit afleiðingar þessa vessa? Ísland er nú þegar búið að missa Kárahnjúka þökk sé þessum vessa og fólk er að segja að hann sé meinlaus. Og ef þeir sem enn eru að lesa eru eitthvað á móti því sem ég segi þá er mamma ykkar meinlaus. Ísland á eftir að líta út eins og ástralskt bílhræ eftir 13 mánuði og ef þeir hætta ekki þá þá koma grænar doppur á Ísland þar til að lokum mun það líta út eins og stóreykingamaður sem reykir þúsund pakka á dag í 10.000 ár, hefur verið með í vörinni í 8.000 ár og hefur legið óhreyfður í bleikum sófa í 2.678 ár.

En fyrst við erum nú þegar sokknir í skítin, hví að stoppa þar? Við getum, auk þess að vera áskrifendur af þessum lifandi vessum erlendra ráðamanna, getum við farið að framleiða A.T.Ó.M. eða Algjör Tilvistarkreppa Ómerkilegra Maðka, K.O.L.E.F.N.I. eða Krumpaða Og Limlesta EfnaFræðinga Norðan Ingólfshöfða og H.E.R.Ó.Í.N. Handónýt Erindi Ráðríkra og Ólíkra Íslenskra Náttúruverndarsinna.

Tekið af http://www.blog.central.is/kaninuchaos