Já góðir hálsar, hér sit ég og bíð eftir að faðir minn klári að setja smér og skinku og ost á brauðin mín, hendi í mig nokkrum kókómjólkum, taki upp lyklana og komi mér í skólann.
Á meðan ég læt gera allt fyrir mig, *fliss*, þá ákvað ég að gera hinn stórmerka atburð; vígja í dag með fyrsta korki dagsins sem er um mína bið.

En ég hef spurningu líka!

Gengur þú í skólann/vinnuna eða ferðu með farartæki og ef þá hvaða farartæki?