Ég slapp líka við skólann í dag, ástæðan er sú að ég [og reyndar pabbi líka] vorum að drepast úr þreytu klukkan 0756 þegar við vöknuðum fyrst.

Ég sagði við hann þú mátt ráða hvort ég sofi hér heima eða í tíma.

Og pabbi valdi að ég mætti sofa heima þar sem hann hefur ekki nennt að koma mér á lappir.

Hey ég er alltaf að týna öllu, núna þá týndi ég veskinu mínu svo ég var labbandi útum allt að leita að veskinu mínu sem var núna týnt.

Loksins þegar ég fann það þá tók ég eftir því að það var í óhreinni peysu sem hafði ekki ratað í óhreinataugið.

En ég er búinn að lesa Tunnuna part I og ég var ekki einu sinni tilnefndur :( en ef ég verð tilnefndur og vinn í eitthvað í seinni partinum þá ætla ég að hafa tunnuna sem Display Picture á MSN og Skype í eitthvern tíma.

Hver nennir að sofa aðeins fyrir mig, ég er svolítið þreyttur en nenni ekki að fara aftur upp í rúm og nenni heldur ekki að leggja mig í sófanum.