Ég var að horfa á The Brave Little Toaster (sem var uppáhalds myndin mín í þá daga) myndina eða Leitina Miklu eins og hún heitir á ísl. og mundi hvað það var gaman að vera lítill og hve miklu ég er að missa af með því að vera ekki fimm ára lengur. Allar minningarnar valda skrítinni tilfiningu sem er erfitt að útskýra hvernig er, skemmtileg en um leið leiðinleg.
Svo ég var að velta fyrir mér hvort þið upplifðuð þetta líka og hvort þið verðið frekar leið en glöð þegar það gerist…