Miii-hii-hiiig langar í veggi með einangrun. Og líka þykka hurð sem blockar allt út“ =D

T.d ef ég er að hlusta á tónlist í rusl hátölörunum mínum, með lokaða hurð, ekki stillt svo hátt, þá kemur mamma inn: Hey, lækkaðu þetta aðeins. Ég lækka, svo stuttu seinna kemur hún aftur: Hey, ég sagði þér að lækka þetta aðeins!

Og núna, klukkan er að verða 4, og heyrnatólin mín er léleg >.< Keypti mér þau á Ísafirði fyrir 900 kall :P

Og já, mig langar að geta hlustað á tónlist og horft á sjónvarpið með bara ágætlega hátt stillt án þess að einhver truflist. Það eru bara mamma og pabbi sem truflast -_-” Ég bý í raðhúsi, þannig það er ekki vooðalega mikið um nágranna sem koma með kúst og bakna í loftið eða gólfið (:

Ég er alvarlega að pæla í að flytjast niður í kjallara ! Það er allt langt í burtu frá mömmu og pabba herberi! Og allt fínt og kjallaralegt ^^

Vóó, og tilgangurinn með þessum kork var: (: Að mig langi að eignast einangrandi veggi í herbergið mitt ! =D
stjórnandi á /bretti, /vetraríþróttum og /heimilið