Ég ligg hérna í makindum mínum með kleinuhring (svona með karamelluglassúri og Rice Krispies)og var eitthvað að hlusta á tónlist og á msn…og huga að sjálfsögðu.

Missi ég þá ekki fjarstýringuna í gólfið með þeim afleiðingum að það hækkar allverulega í græjunum, og tónlistin er orðin mjööööög há.

Að auki rúlla bæði batteríin undir rúm og klukkan er núna eitthvað á milli 3-4 um nóttina.

Úff…og til að bæta dökksvörtu ofan á dökkdökksvart þá vaknaði mamma mín (við mjööööööög háa tónlist) og kom alveg bálreið inn til mín og sagði mér að fara að sofa því ég væri að vekja alla nágrannana. Ég var bara eitthvað eey, slakur samt :)

Núna geymi ég fjarstýringuna alveg útí hinu horninu af hræðslu við að það sama muni gerast aftur…

Að auki er ég svangur, mjög svangur.

En ég vil bæta við fyrir ykkur í Samfylkingunni –> www.samfylking.is - Mad shit hér á ferð.