Ég vil bara tilkynna ykkur það að ég mun ekki mæta á næstum samkundu, því að mínir elskulegu foreldrar vilja nefninlega endilega draga mig með sér upp í sumarbústað um helgina :(
Það þýðir líka að ég geti ekki séð Supernanny á tónleikunum sem ég hafði hlakkað svo mikið til.

Vildi bara segja ykkur þetta svo þið haldið ekki að ég sé að skrópa eða eitthvað þannig.

og eitt enn, því miður (eða sem betur fer) hef ég ekki haft mikinn tíma fyrir sorpið undanfarna daga, hef verið alveg fáránlega mikið upptekinn. Og það á kannski eftir að vera þannig næstu vikurnar, svo að ekki halda að ég sé að yfirgefa ykkur elsku dúllurnar mínar þótt það beri ekki mikið á mér.