Já kæru samsorparar.
Það er opinbert. Þetta hefur lengi verið að veltast um í kollinum á mér en nú er ég loksins búin að viðurkenna þetta fyrir mér og öðrum.

Þið gætuð hugsað “JII HÚN ER ALKÓHÓLISTI” en nei, þar hafiði algjörlega rangt fyrir ykkur. Alkóhól fer ekki inn fyrir mínar varir.
Þið gætuð hugsað “JII HÚN ER BARNAPERRI” en nei, ég hef ekki áhuga á þannig hlutum og ef þú hefur áhuga á þannig hlutum þá bið ég þig vinsamlegast um að leita þér hjálpar.

Já, ég komst að þessu fyrr í dag og er loksins tilbúin.

Ég kom ekki út úr skápnum, ég kom undan rúminu - Já. Það er satt. Ég er sírena. VÍÍÚÚÚ!