Það var sko ekki hægt að segja að okkur hafi endilega leiðst, strákunum sem komust ekki samkomuna, þ.e.a.s. Danna, Huga og mér(Þorfinni) þó við hefðum auðvitað vilja hitta sorparana :/

Við fórum nefnilega í rosalegan gúmmíormaslag!!!
Það byrjaði með því að Danni sló mig í lærið og ég reyndi að hefna mín en þá kom Hugi og sló mig(sem hann btw hefði ekki átt að gera því það átti eftir að hafa sínar afleiðingar) þannig að ég var skyndilega einn á móti tveim…..ég réðst svo á Danna og hæfði hann í hendina og hann sömuleiðis í mína…Hugi réðst svo óvænt á Danna og Danni réðst þá samstundis á hann….og sneri sér svo að mér og lamdi mig…ég hljóp á eftir honum en þá kom Hugi og barði mig í lærið og næstum því í punginn(það var gott fyrir bæði mig og Huga að hann hitti ekki)
Þá urðu þeir hræddir og tóku samstundis á rás…og Danni hann…sló Huga svo fast í bakið að hann fékk LANGT og RAUTT og BÓLGIÐ sár svo að ég og Danni hlógum svo mikið að við urðum að hætta í gúmmíormaslagnum….þá fórum við að horfa á sjónvarpið…þetta var snilld :D

Ég og Danni fengum mörg rauð sár á hendi en ekkert jafnaðist á við sárið hans Huga :')

=D
You slime