Dagur sem ég mun aldrei gleyma

Hvað haldið þið ekki! ég varð fyrir minni verstu lífsreynslu nú á dögunum.
Þetta byrjaði allt á laugardaginn. Ég ákvað að skella mér í aðal verslunarmiðstöð landsins, Kringluna. (ekkert Smáralindar bull) Það fyrsta sem ég gerði var að ganga inn þar sem snúningshurðin er og haldiði ekki! Hún stoppar og allt fólkið fast inni og ég líka. Við hliðina á mér stendur gömul kelling sem er alveg að missa sig! Hún hlýtur að hafa innilokunarkennd á háu stigi? Hún signir sig í gríð og erg og þylur einhver skrítin orð og horfir upp í loftið eins og guð almáttugur komi niður og bjargi henni. Einhver strákur ætlar að hugga hana en hún klikkast og lemur hann með stafnum sínum og ég er alveg að springa úr hlátri. Loksins fer hurðin í gang og ég kemst áfram.
Rúllustiginn er næstur. Ég er á leiðinni upp þegar stigin stoppar og ég þarf að labba upp hálfan stigann. Nú vona ég að hörmungunum sé lokið og fer í rólegheitunum inn í eina búð og kaupi mér bol. Þegar ég fer út úr búðinni er ég svo skemmtilega happin að þjófavarnarkerfið fer í gang! Öryggisvörður kemur og leitar á mér og allir sem fara framhjá horfa á mig eins og ég hafi framið alvarleg hryðjuverk. Öryggisvörðurinn segir mér að koma aftur inn og það kemur í ljós að afgreiðsludaman hefur gleymt að taka þetta hvíta drasl af bolnum.
Eftir að hafa sínt kassakvittun og sloppið út ákveð ég að fá mér að borða í rólegheitum eftir þetta mikla ævintýri. Þegar ég er að sækja matinn minn er ég svo skemmtilega heppin að detta með bakkan og maturinn út um allt gólf! Nú finnst mér nóg komið ég ætla að fara. Ég ákveð að taka lyftuna því rúllustiginn er enn fastur. Hurðin er alveg að lokast þegar gamla kellingin með stafin kemur inn og hladiði ekki lyftan er ný farin af stað þegar hún festist. Sú gamla verður alveg óð og ýtir á neyðarhnappin alveg óð!!! Ég reyni að halda eins mikilli fjarlægð og mögulegt er því ég vill ekki enda eins og strákurinn sem fékk að kynnast stafnum hennar náið. Loks fer lyftan í gang og ég fer út á neðstu hæð. Ég labba inn í snúningshurðina og þegar ég er að fara út misreikna ég mig eitthvað og labba beint á hurðina. Gamla kellingin stendur við hliðina á mér og skelli hlær.


Eftir þessa ferð er það ljóst að ég fer í Smáralind næst!!
- Er gaman af biluðu bulli? Skoppaðu þá eins og fiskur í algjöru rugli!!