ein ástæðan fyrir því að ég kemst ekki á samkomuna er að ég á að vera eitthvað hármódel á eitthverri sýningu á morgun…eeen áðan var verið að undirbúa þetta og búa til greiðslu og svona. þá kom í ljós að það þurfti að lita á mér hárið!
Þið getið sko trúað því að hjartað á mér stoppaði….taka fallega litinn minn???Hvað er fólk að pæla???!?!?
En síðan kom í ljós að það átti að dekkja hann :D:D:D ooooog setja rauðar strípur í toppinn :D það er sko búið að vera draumaklippinginn mín í eilífð :D:D:D Er orðinn dulítið lík Leifi núna, nema bara stelpa….
Enn gamanið var sko ekki búið(ef það má kalla það gaman)
Á þessum tímapunkti fékk ég að sjá fötin…..hakan á mér datt niðrí gólf :O Þetta er ljótasti kjóll sem ég hef nokkurn tíman séð. Hann er svartur, með hvítu þröngu hálsmáli og hvítum ermum(svona fremst) síðan er neðsti hlutinn(svona 40 cm) hvítur…kjóllinn er hnésíður. En það versta er eftir….hann er með risa tölum á hliðunum..bara til skrauts og svo er hann svo þröngur að ég get varla andað í honum :S :(
Kannski gæti sumum fundist hann flottur en ég get sko sagt ykkur að þetta er EKKI minn stíll :O
Sem betur fer þarf ég bara að vera í þessu í svona 10 mín (á meðan myndatakan er) en ég þarf samt að vera með rúllur í hárinu í 2 tíma…fyrir framan allt fólkið :O

Jæja hvort eru meira gallar eða kostir.

Fæ flottan nýjan lit í hárið en þarf að gera mig að fífli fyrir allan bæinn (alveg 17000 fólk) þegar myndinn kemur í dagsskránni?
Voulez-vous coucher avec moi, ce soir?