Djöfull er ég tough ;D Ég mætti í skólan - í hálfs metra þykkum snjó(og sumsstaðar upp að mitti) - í stuttbuxum! Óje! Ég fékk far í skólan en ég var úti í stuttbuxunum og labbaði síðan heim(rúmur kílómetri) í þeim! Djöfull var það fríkað.. Síðan þegar ég var á leiðinni heim það var svona leið sem að mikið fólk labbar en það var ekki eitt einasta skref þar þannig að ég ákvað að vera fyrstur og hoppa á kálfana í snjóinn, það vildi nú ekki betur til en svo að ég lenti á einvherri möl eða eitthvað og meiddi mig í hnjánum.. Stuttu eftir það fór öll tilfinning úr fótunum á mér vegna kulda en þegar ég kom heim byrjaði mig að verkja í vinstra hnéð, þetta er búið að vera í svolítinn tíma þannig að ég ákveð að kíkja og viti menn! Ég er með risastórt sár þarna sem að fossblæðir úr!

PS Ég er mestur og bestur allra guða, trúið mér og treystið

PSS Ég veit allt, get allt og kann allt…..