Gúlp Tölvan mín er frosin!

Þið kannski trúið mér ekki þar sem að ég er að skrifa kork/þráð núna sem bendir grunsamlega mikið til þess að tölvan sé EKKI frosin!

En þannig er mál með vexti að allt nema sorpið fraus!

Og nú er ég föst inni á sorpinu að Eilífu! EILÍFU!

Sem er ekki alveg my thing þar sem ég er búin að ákveða að gera ýmislegt fleira en að vera bara á sorpinu!

Og ég get ekki einu sinni lokað þessum skjá þó að það gæti þýtt að ég kæmist ekki aftur inná hér! Takkinn þarna strikið efst í horninu er líka frosinn. Og Start og allir lítlu takkarnir og þarna þetta langa sem segir mér í hverju ég er í í tölvunni!

Allt nema Sorpið…Þetta er rosalegt!

Ég held að ég fari bara að fá mér að borða…Mandarína, Kíwí og eitthvað brauð er alls ekki nóg til hálfþrjú/Ég er ekki heimsk, ég veit að klukkan er hálffjögur en ég var bara búin að plana að borða þegar ég kæmi heim úr skólanum uppúr hálfþrjú/

Þar sem allt er frosið þá þarf ég ekki að fara útúr neinu og get lifað áfram án þess að hafa áhyggjur af því! Litli ljósi punkturinn í lífi mínu núna…Jibbey!