Ég er soldið pirraður á bróður mínum (hellrider).
Málið er að í morgun þurfti hann að vekja mig með því að stnadna hjá rúminu mínu og pota í eitthvað prumpuslím og hló eins og geðsjúklingur.
Ég nennti ekki að fara á lappir, þannig að hann tók sig til og spreyjaði prumpuspreyji inn til mín og lokaði hurðinni !
Hann vakti systur mína líka þannig.

Svo fór hann að rífast við systur mína um hvort eitthvað lag hét Freak Out eða Le Freak Out (með Chic, eitthvað diskólag, þið þekkið það þegar þið heyrið það), og varð síðan svo pirraður á því að hafa rangt fyrir sér að hann byrjaði að spreyja þessu prumpuspreyi út um allt hús, og meðal annars í hárið á mér !

Ég reyndi að losna við þessa lykt með því að spreyja rakspíra út um allt hús og fór svo í sturtu, en fjandans lyktinm er ekki ennþá farin, hún er föst í hárinu mínu samt var ég í langan tíma í sturtu og notaði heilu lítrana af sjámpói >:(

og nú er hann aftur byrjaður að leika sér með þetta prumpuslím :(

ps. já, hann er 12 ára !

Vill einhver fá hann lánaðan yfir jólin ?