Ég var að fatta áðan að pabbi minn er alls ekki svo slæmur, reyndar bara mjög fínn.
Þegar hann vaknaði í dag kom hann inní herbergið mitt til að tékka hvort ég væri heima og sá að mér leið ekkert svaka vel (ég var nefnilega frekar mjög mikið down) og spurði hvort það væri eitthvað að en auðvitað vildi ég ekki segja honum frá en eins og vanalega þá dró hann það uppúr mér, og ég sagði honum allt sem hafði gerst…. eða svona næstum allt *-)
Og hann faðmaði mig, já faðmaði (haha, erfitt að trúa ha? :P) og við töluðum saman í soldinn tíma og fórum svo að baka smákökur ^^
Þegar við vorum búin að því horfðum við á Friends og að sjálfsögðu átum nokkrar smákökur :D

Ég var geðveikt fúl útí pabba fyrir stuttu en núna þykir mér braa býsna vænt um hann og ég vil ekki að þið sem lesið þetta (og deyið ekki úr leiðindum við það *-)…) haldið að hann sé einhver ógeðslegur miðaldra perri heldur bara fínn kall með sérstakann húmor ^^
P.S. ég skal hætta að senda inn korka um fjölskylduna mína… ég lofa :)
I love you, in a really, really big pretend to like your taste in music,