Allt í lagi, ég veit að ég hef kvartað ófáum sinnum yfir foreldrum mínum en þetta er bara ógeðslegt! +o(

Við sátum við matarborðið og átum svona eins og við vanalega gerum og mamma og pabbi fara að tala saman…. ekkert að því…. þeas fyrr en pabbi fer að forvitnast um hvað mamma vill fá í jólgjöf og svo ætlar hann að vera svo óóógeðslega fyndinn eitthvað og stríða mér svo hann spyr…

Pabbi: Erna mín, viltu ekki fá svipu í jólgjöf?
Mamma: Nei, ég vil þrífót…
Pabbi: Nú?…. helduru ekki að það verði vont??… viljum nú ekki vekja hana Línu með öskrunum í þér(svo blikkar hann mig og þau fara í hláturskrampa á meðan ég sit og kafna á matnum mínum :/……)

ARGHH! FORELDRAR!….. just good for one thing I say….. to give you money…..

En já svo vil ég líka væla yfir því hvað ég á heimska systur, sure hún er sex ára en þarf hún að vera heimsk?!
Á meðan þau eru í þessu hláturskasti ákveður systir mín að laumast út en mamma sá hana og segir…

Mamma: Kláraðu *andar* matinn *andar* þinn.
Systir mín: En ég er svooo södd (hún var búin að stinga tveim hrísgrjónum uppí nösina á sér…)
Mamma: Borðaðu að minnsta kosti fjóra bita í viðbót.
Systir mín: 3!
Mamma: 4…
Systir mín: *hugsar sig um í smá stund* 5!! nei 20!!
Hún sagði þetta ekki í gríni…..hún át í alvöru tuttugu bita í viðbót og hélt að hún hefði losnað við eitthvað svakalegt.

Úff! er það ég eða er fjölskyldan mín bara ekki normal?
I love you, in a really, really big pretend to like your taste in music,