vá mér hefur aldrei sviði svona mikið!

þannig gerðist það að í dag var ég að rífast við litla bróður minn og var eitthvað að bíta hann og þá tók hann af mér síman og þegar ég reyndi að ná honum aftur brotnaði frontið og stakkst inn í hendina á mér( þar sem “sundfitið” er milli þumalsins og bendiputta) og vantar þar smá stykki í hendina á mér. Þetta var auðvitað nokkuð vont en ég komst yfir það. En í allan dag er sárið búið að vera galopið og ég alltaf jafn dofinn í því. Síðan í kvöld fer etta að lagast en alltaf var sárið jafn opið.
síðan fyrir svona korteri sat ég fyrir framan tölvuskjáinn og var að borða saltlakkrís með extra salti. Neinei, nudda ég ekki óvart höndunum saman og helmingurinn af saltinu í sárið. Ég held að mér hafi aldrei sviðið jafn mikið!!!´
Mér svíður enn, skolaði allt út samt en ég get ekki notað þumalinn og bendiputta, mjög erfitt að skrifa btw….úff
Voulez-vous coucher avec moi, ce soir?