eins og flest ykkar vitið…þá er ég með raddir inn í höfðinu mínu sem ég tala oft við…en hér kemur enn ein sönnun fyrirð því að ég sé nett geðveik…eða ætti ég að segja: MJÖÖÖÖÖÖG GEÐBILIÐ!!!

anyways…hér kemur hún:

ég var hjá sjúkraþjálfa (don't ask me why…tengist liða- og vefjagigt) og ég lá á svona nuddbekk eins og er alltaf í bíómyndum…svona með gati fyrir andlitið…og meðan það var verið að murka úr mér líftóruna (sjúkraþjálfun er PAIN) þá tók ég eftir litlum límmiða sem var á nuddbekkjarfætinum. Á þessum miða stóð:

A. Kárason
Brautarholti 28
S: blablabla fax: blalala

já…þetta var semsagt auglýsing frá gaurnum sem gerði þennan nuddbekk.

Þið eruð eflaust að velta því fyrir ykkur hvernig þetta sé sönnun um það að ég sé geðbiluð…þá skal ég segja ykkur það að ég er alls ekki búin!

þegar ég lá þarna og sjúkraþjálfarinn var að kvelja mig…var ég (eins og ég sagði áðan) að lesa á þennan miða. En það skrýtna var að ég gat ekki lesið töluna 28. Fhverju er það skrýtið? gætuð þið spurt. Ég skal segja ykkur það: þessi tala var alltaf að breytast…ég las fyrst 28, svo breyttist hún í 26, svo 29, svo 30, svo 72 og svona hélt þetta áfram. ÉG ER EKKI AÐ GRÍNAST…ÉG S'A TÖLUNA BREYTAST FYRIR FRAMAN MIG!

þetta var alveg eins og jólaniðurteljarinn á jól.is…þanna sekúndudæmið…þetta breyttist þannig…nema pínu hraðar…og þetta fór ekki eftir sérstakri röð.

Er ég geðveik?

ykkar að dæma…

annars þurfti ég bara að fá smá útrás…ég var sko orðin drulluhrædd…vonandi farið þið samt ekki að loka mig inná kleppi!!

KV. HoneyBunny