Eins og sumir hafa kannski tekið eftir þá gerðist sá hræðilegi atburður að ég hvarf af Sorpinu.

Þegar ég fór í bæinn þá fór ég til móðurömmu minnar þar sem hin amman var og er enn í Boston og pabbi ruglaði dagsetningunni á Roger Moore svo ég fór til móðurömmu minnar.

Og þar er tölva sem er ekkert ný, Windows 2000 og er það hæg á netinu þar sem það er upphringitenging eða eikkað álíka, stundum held ég að hún[tölvan] sé handsnúin.

Og ég nennti bara ekki að vera í tölvu sem er svo hæg að hún vinnur afturábak.

En annars var ekki hræðilegt að vera án mín heila helgi???

Ég vænti þess að þið svarið játandi en ef þið svarið neitandi þá ulla ég á ykkur!!!!1