Já þar sem að í dag er Háttvirtur dagur þá skal ég einungis rita á sómasamlegri íslenzkri tungu og engin slanguryrði eins og venjan er að kalla þau.

En þessi korkur/þráður var sendur hér inn því að ég var búin að skoða allt nýtt á Sorpi voru og beið því bara í hvikuli von um að einhver myndi nú senda inn eitthvað til að róa huga minn. Eftir fimm mínútna óþreyjufulla bið þá ákvað ég að taka málið í mínar hendur.

Og hér erum við saman komin við lok þessa korks/þráðs og þökkum fyrir að þetta innslag hafi birtst því annars hefðu líklega ég og aðrir háttvirtir sorparar í sömu aðstæðum og ég…Hreinlega dáið!

Þökk fyrir áheyrn vora
Ykkar einlæg
Cho

Góðar stundir!