Hér hefur verið stofnaður uppistandskorkur þar sem Hugaðir Sorparar geta slegið í gegn sem aldrei fyrr með drepfyndnum hugarfóstrum sínum sem þeir hafa burðast með í gegnum tíðina.

Og ég byrja:D:D

[ASS gengur inn, áhorfendur kútveltast á gólfinu af hlátri]
Hvað er eiginlega málið með tannstöngla?
Eru þeir klósetpappír fyrir tennurnar?
[áhorfendur byrja að flissa]
Nei bíddu annars, ég hélt að það væri tannburstinn…
[hlátur]
Af hverju er þetta ekki bara sameinað, í tannburstur?
[einhver springur aftast í salnum]
Mér finnst reyndar eins og það ætti að gera allgjörlega nýjan hlut.
Töflu sem maður tekur og hún hreinsar tennurnar sjálf.
[áhorfendur kinka kolli til samþykkis]
Og kalla hana ríkisstjórn!!!
[allir springa og hlátrinum linnir ekki næstu mínúturnar]

Einusinni var ég þeirrar skoðunar að appelsínugulur ætti ekki að teljast sem litur, vegna þess að hann heitir eftir lifandi hlut.
Það var áður en ég áttaði mig á uppáhaldsliturinn minn heitir eftir blómi.
[enginn skilur]
Nú fjólublár!!!
[allir skellihlægja, einn maður dettur af stólnum sínum og kona missir hárkollu]

Þakka ykkur fyrir, takk fyrir, takk takk…

Næst á svið kemur…