Vá hvað ég er ömurlegur í stærðfræði !
Við vorum í prófi í um daginn og getiði hvað…. ÉG FÉKK NÚLL ! Ég er ekki einusinni nógu góður til að ná 0.000000000000000000000001.
Meðaleinkunnin í bekknum var 1,5, og það eru margir í bekknum komnir yfir tvítugt, meira að segja er ein kona sem er komin yfir fertugt.
En það heimskuælegasta við þetta var, að þetta var úr hnitakerfi sem á að vera það auðveldasta í heimi.

En þetta er nýtt met hjá mér í að ná lágri einkunn ,það fyrra var 1,5 , svo að ég lít á þetta sem stóran áfanga.

Ps. ég er að fara til Búlgaríu eftir 192 daga :D

Ps2. þetta er skammstöfun á Playstation 2

Ps3. Ef þið eruð orðin þreytt á litlu systkinum ykkar, einhverju hjartveiku fólki eða öðrum heilsutæpum kunningjum , þá mæli ég með að þið dragið þau með ykkur á miðnætursýningu á Emily Rose. Segið að þetta sé mynd um blómasala eða eitthvað álíka saklaust.