(eftirfarandi er nöldur, það er á þína ábyrgð ef þú lest)

Ohhhh, ég var svo lengi í skólanum í dag, tvöfaldur heimilisfræðitími, eða sko, fjórir tímar, er tveir venjulega, og við vorum að búa til stóra máltíð, aðalrétt, eftirrétt og forrétt, það var reyndar gott. Það er samt weird að koma út úr skólanum í myrkri :/

En, það versta við daginn var ekki lengdin, heldur sú staðreynd að það var tekin mynd af mér! GARG! Sko, það var verið að taka mynd af borðinu, og þá fór ég frá til að vera ekki á myndinni, en neinei, þeir eltu mig, héldu mér föstum og ég gat mig ekkert hreyft, ekki einu sinni koverað andlitið, það var svo niðurlæagjandi! Svo er myndin ógeðsleg! Hata svona… Nú fékk ég að upplifa hvernig það er að vera stjarna eltur af paparazzios.

-vansi, andlega niðurbrotinn