Sæl veri fólkið!

Ég vil segja ykkur gleðifréttir.

Í dag fékk ég nýja Úrsúlu.

Í gær fékk ég nefnilega þær fréttir að Úrsúla I væri látin (blessuð sé mynning hennar) og var látin vita af því að ég gæti komið og sótt mér nýja Úrsúlu í Stórhöfða. Svo ég gerði það og nú er ég komin með alveg heilbrigða Úrsúlu. Og hún er svo yndisleg. Hún er bleik og hún er lítil og mér er farið að þykja nokkuð vænt um hana.

Og já, ég ætti kannski að láta það fljóta með að Úrsúla er MP3 spilari. Frá Creative og alles bara.

Nú legg ég til að við bjóðum öll Úrsúlu velkomna í heiminn.