Hah! YEAH! Gærdagurinn var alveg geðveikur; ég fór í Power Rangers leik í Sega tölvu og komst að því(á meðan ég var bleika) af hverju maður er ekki stelpur í slagsmálaleikjum, síðan þá fór ég líka og reifst við pabba minn, heimsótti mömmu mína og reifst við hana, hitti systur mína, báðar systurdætur mínar og hina systur mína! En hápunkturinn var nú samt þegar ég spilaði Streets of Rage 2 í Sega; mesti SNILLDAR leikur í heimi, ég hef aldrei spilað neinn jafn skemmtilegan Sega leik… Né Nintendo leik… Auk þess þá rifjaði ég upp þegar að stjúpbróðir minn sagði mér frá því þegar að stóri bróðir vinar hans fór til Ameríku(BNA) og kom heim með 3 Kings quest leiki og GEISLADRIF; það var nátt'lega bara VÓ fyrir einhverjum 12 árum eða eitthvað…..