Hver hélt að ég væri að tala um lifandi mús??? ;D hehe





..þetta snýst allavega um sögu tölvumúsarinnar minnar :)

jááá…það er þannig að ég var alltaf með mjög fína mús. Sem var þráðlaus og með leyser en ekki kúlu.

En svo gerðist eitthvað þannig að ég þurfti að skipta yfir í gamla..sem var ekki þráðlaus og hún var með kúlu..og hún var bara ömurleg.

Samt lét ég hana bara duga…einfaldlega af leti og nísku minni við því að kaupa nýja.

Það eru meira að segja nokkrir búnir að kvarta og hneyglslast yfir því hvað þetta sé ömurleg mús! Spurja hvernig ég geti eiginlega notað hana..




..og svo núna þá prófaði ég að opna þar sem kúlan er..

og það var ekki fögur sjón skal ég segja þér!

En hún var bara full af ryki og bara ógeðsleg..þannig að ég þreif hana.




Og núna virkar hún bara mjöög vel :)